Eins og við Internatjonallarnir segjum "Vííííííí aaaaar þeeeeeee tsssjammmmpjíííóóóóóóónsssss"
17.11.04
Mér líst vel á það að vera orðinn efstur í deildinni, yfirburðirnir eru algjörir 7,67 stig að meðaltali á meðan að næsti maður nær einungis 6,56 stigum að meðaltali.
Eins og við Internatjonallarnir segjum "Vííííííí aaaaar þeeeeeee tsssjammmmpjíííóóóóóóónsssss"
Eins og við Internatjonallarnir segjum "Vííííííí aaaaar þeeeeeee tsssjammmmpjíííóóóóóóónsssss"
10.11.04
Hvernig er það, væri ekki eðlilegra að raða mönnum eftir meðalfjölda stiga í umferð?? Þá fyrst færi að skilja á milli hafra og sauða!
23.9.04
Mig langar til að nota þetta tækifæri og óska ETK, starfsmanni mánaðarins hjá Eigin viðskiptum, til hamingju með öll stigin sem hann fékk á þriðjudaginn. Strákurinn er vel að þessu kominn og vonandi fær hann fleiri stig áður en veturinn er úti !
Góðar stundir,
Helgi
Góðar stundir,
Helgi
21.4.04
Botnbaráttan er nú hafin fyrir alvöru, ekkert verður gefið eftir á síðustu metrunum. Óli Barði er líklegur kandídat til að falla niður um deild þar sem að hann heldur bæði með Val og Leeds. Húsvörðurinn í Versló var í óvenju góðu skapi þar sem að hann sá að Rúnar var ekki mættur í tímann til að misþyrma veggjunum fyrir aftan markið með hnitmiðuðum þrumuskotum framhjá. Undirritaður átti fantagóðan leik þar til að hann var sparkaður gróflega niður í dauðafæri. Eftir tímann var svo samdóma álit annara spilara að veita mér verðlaun fyrir prúðmannlega spilamennsku svona í sárabætur fyrir þetta grófa brot, og sérstök fegurðarverðlaun fyrir frábærlega vel útfærða rennitæklingu. EPSON var kosinn vinsælasta stúlkan og ljósmyndafyrirsæta kvöldsins þrátt fyrir að geta ekki neitt. Þeir sem ekki hafa lesið örsmá letrið undir smáa letrinu í keppnisreglunum skulum síðan gera sér grein fyrir því að í lok móts er Bjórskuldin dregin frá heildarstigum til að fá út rétta röð á spilurum. Atli er því einnig í botnbaráttunni með 119 - 78 = 41 stig og er því líklegastur til að falla niður um deild með ÓBK.
Með kveðju,
Samlokan á bekknum
Með kveðju,
Samlokan á bekknum
10.4.04
31.3.04
Undirritaður átti í vök að verjast allan tímann enda með endemum óheppinn með samspilara, þurti ég m.a. að glíma við það að sitja upp með þrjá af fjórum neðstu mönnum á stigatöflunni. Það að hafa ekki tapað stærra verður því að teljast alfarið mér sjálfum að þakka þó svo að klaufaskapur admin og E. Pálma hafi einnig hjálpað til. Eddi áttaði sig greinilega á því að ef að hans lið ætti ekki að glopra þessu niður í algjörum aumingjaskap þá yrði hann að grípa til þess ráðs að gera besta mann mótherjanna (mig) óvígan. Allt leit út fyrir að þetta óþokkabragði hefði heppnast því meðan gert var að sárum mínum komust þeir í 5-0, kom undirritaður þá eins og elding inn á markaðinn þrátt fyrir að vera háls og fótbrotinn og reddaði málunum.
Mun grófur leikur Edda verða tekin fyrir hjá aganefndinni á næstunni og má reikna með að hann verði útilokaður frá keppni næstu 6 dagana.
M.kv.
Samlokan á bekknum.
Mun grófur leikur Edda verða tekin fyrir hjá aganefndinni á næstunni og má reikna með að hann verði útilokaður frá keppni næstu 6 dagana.
M.kv.
Samlokan á bekknum.
Gróf brot !!!
Sælir, ástæða þykir nú orðin til að minnast á það að svo stöddu að hvetja menn til að skilja öll vopn eftir heima. Brotið var afar gróft í gær og menn nokkuð lemstraðir að því er virðist. Allir sem voru þar sáu þegar Rósi og Eddi lentu í samstuði með augljósum afleiðingum, jafnvel fyrir þá sem ekki mættu (fyrir sauðnautin þá meiddi rósi sig), nú svo þegar Eddi felldi undirritaðann er ég var kominn einn í gegn, svo var það þegar Gísla brast geð og braut á Edda... og svo mætti lengi telja. Óumflýjanlegt er að sjá, ef þetta er dregið saman í niðurstöðu..... EDDI ! Hann virðist hafa átt í hlut alls staðar þar sem brot átti sér stað. Af þessu má ráða að brotavilji Edda er einsettur... sem og þ.a.l. brotavilji annarra gagnvart Edda. Má því hart nær fullyrða að Eddi sé slæmur félagsskapur fyrir okkur ... hvað finnst ykkur ?

25.3.04
Undirritaður lýsir yfir óánægju sinni með admin fyrir að minnast ekki á frækilegan árangur minn, ekkert meidd og tuttugu stig í hús. Vil ég einnig vekja athygli á því að nýstofnað Fjármálasvið er að meðaltali með 77 stig á hvern starfandi knattspyrnusnilling á meðan að MAR hefur einungis halað inn að meðaltali rúmum 72 stigum á hvern tuðrusparkara í sinum röðum.
M.kv.
Samlokan á bekknum
M.kv.
Samlokan á bekknum
23.3.04
rósi ruglukollur er
rétt í þessu að hugsa sér...
Ég ætla ekki að mæta í kvöld en þrátt fyrir það þá held ég að ef ég hugsa mig vel um og einbeiti mér að því, þar sem ég verð staddur í matarboði, þá takist mér með hugarorkunni að fella rósa í boltanum í kvöld með þeim afleiðingum að hann hálsbrotnar og fer skælandi heim. Þetta án þess að vera telekinetic eins og Carrie ( Stephen, nabbni minn, King).
Taktu kraga með rósi

18.3.04
Nýtt norðurlandamet í yfirdrulli án atrennu innanhús komið á bloggerinn og engin viðbrögð !!!
M.kv.
Samlokan á bekknum.
M.kv.
Samlokan á bekknum.
17.3.04
Undirritaður náði að hámarka nytjafallið í gær með því að ná fleiri stigum á spilaðar mínútur en áður hefur þekkst. Vil ég benda efasemdamönnum á það að allir helstu íþróttamenn íslandssögunnar hafa beitt þessari aðferð í gegnum tíðina með góðum árangri samanber Einar (Vinstri öxl) Vilhjálmsson og Jón Arnar Skagafjarðarmeistari í fjöruhlaupi innanhús. Stefán B. er farin að undirbúa sig fyrir góð kvót frá EVI þegar að hann flyst yfir í MAR og passaði upp á það að fá engin stig á meðan að EVI liðar náðu fullu húsi. Með sama áframhaldi munu Stefánarnir jafnvel ná toppsætinu í aumingjaskap af M&E Pálma. Admin er á hraðri niðurleið á stigatöflunni og ætti hann kannski að einbeita sér meira að því að skjóta færri skotum og lausar en hitta markið í staðin, það ku vera vænlegt til árangurs.
M.kv.
Samlokan á bekknum
M.kv.
Samlokan á bekknum
3.3.04
Eins og Ingólfur "Debet" Ingólfsson hefur réttilega bent á þá náði undirritaður þeim merka áfanga í gær að halda út heilan tíma. Næst er stefnan sett á að ná a.m.k. einu stigi. Annars var boltinn óvenju prúðmannlega spilaður í gær og tel ég ástæðuna vera að finna í skorti á rannsóknardýrum sem voru víst að drekka og dópa á einhverju rokktónleikum.
19.2.04
18.2.04
Undirritaður getur ekki annað en líst yfir vonbrigðum sínum með frammistöðu bolsevikans M. Pálma eftir að hann fékk tækifæri með aðalliðinu. Varaliðið átti nokkra góða spretti framan af þrátt fyrir að vera tveimur mörkum undir þegar að hin afdrifaríka skipting átti sér stað. Læðist að manni sá grunur að sögusagnir um frægðarferil M. Pálma sem knattspyrnumanns vestfjarða í 6. flokki c hafi verið ýkjusögur og í raun og veru hafi kappinn alið manninn lengst af í heita pottinum undir handarjaðri sunddeildarinnar.
M.kv.
Samlokan á bekknum
M.kv.
Samlokan á bekknum
13.2.04
"...ata mig í forinu..." ???? Hvað er þetta ?
Sjálfur er ég að norðan, þó ekki Akureyri, en að norða engu að síður. Þar tölum við ekki um að ata okkur í forinu ! Ég læt fylgja dæmi þar sem þetta er rétt notað:
Það má eiginlega segja að þú sért búinn að ata þig í forinni með þessum málflutningi.
Góða helgi !

12.2.04
Það er ljóst að ef E. Pálmi ætlar að halda áfram að ná sér í næturvinnustubb þá mun hans "kommbakk" í boltann ekki verða lengi í minnum haft. Hollendingurinn fljúgandi virðist vera full reyktur eftir útlegðina og virðist lítið hafa lært í boltabrögðum af flatlendingum.
17.12.03
Svaðalegur tími í gærkvöldi, undirritaður fór á kostum og tók fullt hús stiga og nýtti mér fjarveru Rúnars til hins ítrasta til að skilja hann eftir í rykmekki á stigatöflunni. Stefnan er næst sett á að komast upp fyrir greiningargúbbana þrjá á stigatöflunni. Tilþrif kvöldsins skrifast á "Versló" fyrir að hafa endurnýjað sturtubúnaðinn hjá sér.
10.12.03
Ekki náði ég Rúnari að stigum að þessu sinni, enda snéri hann á mig með lúalegu bragði sem fólst í því að vera allan tímann með mér í liði. Fátt var um veruleg tilþrif í boltanum í gær fyrir utan kannski þegar að Ingó fórnaði sér og skoraði með andlitinu af 50 cm færi.
9.12.03
Bolti í kvöld og stefnan sett á að fara fram úr Rúnari á stigatöflunni, eins og allir sjá þá gefa meðalstigin það sterklega til kynna að ég eigi að vera fyrir ofan hann á stigatöflunni.
26.11.03
Ég mæli með að tekin verði upp ný regla sem kveður á um það að Ingólfur og Einar megi ekki vera í sama liði
28.10.03
Stigaleysi frá helvíti
Ég skal hundur heita ef ég fæ ekki stig í kveld.
Yfir og út og ekki orð um það meir.
Ég skal hundur heita ef ég fæ ekki stig í kveld.
Yfir og út og ekki orð um það meir.
17.9.03
Stig síðustu tveggja tíma kominn inn
Sælir sokkar, nú hefur haugurinn sem tók að sér að vera vefstjóri félagsins loksins uppfært stigatöfluna. Farið yfir stigin ykkar og látið vita ef eitthvað er ekki eins og það á að vera. Farið svo að aulast til að skrifa eitthvað á síðuna!