Bankaboltinn á þriðjudögum

15.1.03

Það voru greinilega brögð í tafli í gær, Bolvíkingurinn knái réði til leiks tvo leikmenn sem spiluðu áberandi vel á meðan að þeir voru með honum í liði en gátu síðan ekkert þegar að þeir voru á móti honum í liði, enda náði Vestfjarðarvíkingurinn fullu húsi stiga í gær. Til viðbótar telfdi Magnús refskák þegar að hann skipulagði skiptingar í sínu liði og sætti lagi að ná setti þegar að undirritaður vermdi bekkinn og sá sikileyjarvörnina hjá sínu liði hrynja gegn leiftursókn Magnúsarmanna. Til skoðunar er að fá Friðrik Ólafsson til ráðgjafar í næsta tíma til að verjast þessum bolabrögðum bolvíkingsins.

Ef ég man rétt þá kom Gísli of seint í gær og ætti því að skulda einn bjór fyrir vikið

Er það satt að allt hafi farið í fokk þegar Rósi fór útaf? Hef einnig heyrt að Rósi muni fara fram á endurtalningu marka. Það var víst eitthvað óeðlilegt við þetta því sumir virðast bara vera þvælast um salinn og smala mörkum.