Bankaboltinn á þriðjudögum

19.3.03

Þetta er nú ljóta vitleysan sem er farin í gang.

Ég veit ekki betur en að ég hafi verið mættur nokkuð tímanlega í gær, og þegar að ég mætti inn í salinn þá var enginn leikur í gangi. Ef að menn telja sig hafa verið með leik í gangi sem var byrjaður áður en ég mætti á svæðið þá vil ég bara leggja fram eftirfarandi spurningar.

1. Ef að leikur var hafinn áður en að ég mætti á svæðið, afhverju var hann þá ekki í gangi þegar að ég mætti í salinn ?
2. Ef að leikur var hafinn áður en að ég mætti á svæðið og staðan hefur verið 1-0 afhverju var þeim leik þá slitið ? Reglurnar hveða skýrt á um það að leik skuli lokið þegar að staðan er orðin 6-0 eða að tíminn sé úti.
3. Ef að leikurinn var hafinn og leik slitið þegar að staðan var 1-0, þá er það sérkennilegt afbrigði af þeim reglum sem eru í gildi og mæli ég með refsibjórskuld upp á 6 flöskur á þá aðila sem standa að slíku afbrigði.

M.kv.

RMT

Þetta er mesta bull sem ég hef nokkurn tíman heyrt.(Mikki refur).
Ég mun ekki greiða skuld sem sett er einhliða af vefstjóra. Tel að regluvörður fari þarna með rétt mál og að við verðum að finna aðra leið til að halda utan um þetta ef vefstjóri sýnir ekki að hann muni sinna þessu af samviskusemi og heilindum.
Passaðu þig Benni...........það er kalt á toppnum og þar tolla menn ekki lengi.

Höfundur er áhugamaður um bjórskuldir

Ég vil fá skýringu á þessari bjórskuld sem hefur verið skráð mjög handahófskennt í gær. Mér sýnist sem vefstjórinn fara ansi frjálslega með staðreyndir.