Bankaboltinn á þriðjudögum

4.9.03

Jæja sokkar þá er síðan komin á ról og stigataflan hefur verið uppfærð. Fyrsta umferðin var leikin á þriðjudaginn og var augljóst að margir hafa gert meira af því að grilla en að hreyfa sig þetta sumarið. Leiknir voru tveir leikir þetta skiptið og voru 14 stig í boði. Gísli og greiningargúbbarnir (Stefán Broddi og Atli Rafn) tróna á toppnum með fullt hús stiga, en þriðji greiningargúbbinn og sigurvegari síðasta keppnistímabils (Einar) hefur greinilega ofmetnast eitthvað eftir síðasta season, þar sem hann náði ekki neinu stigi þetta skiptið, en spyrjum að leikslokum. Það er spurning hvort að við eigum að láta sektakerfið byrja strax og hafa kippu af Rósa, sennilega er sanngjarnt að láta það byrja næst. Við leggjum það í nefnd.