Bankaboltinn á þriðjudögum

3.3.04

Eins og Ingólfur "Debet" Ingólfsson hefur réttilega bent á þá náði undirritaður þeim merka áfanga í gær að halda út heilan tíma. Næst er stefnan sett á að ná a.m.k. einu stigi. Annars var boltinn óvenju prúðmannlega spilaður í gær og tel ég ástæðuna vera að finna í skorti á rannsóknardýrum sem voru víst að drekka og dópa á einhverju rokktónleikum.