Undirritaður náði að hámarka nytjafallið í gær með því að ná fleiri stigum á spilaðar mínútur en áður hefur þekkst. Vil ég benda efasemdamönnum á það að allir helstu íþróttamenn íslandssögunnar hafa beitt þessari aðferð í gegnum tíðina með góðum árangri samanber Einar (Vinstri öxl) Vilhjálmsson og Jón Arnar Skagafjarðarmeistari í fjöruhlaupi innanhús. Stefán B. er farin að undirbúa sig fyrir góð kvót frá EVI þegar að hann flyst yfir í MAR og passaði upp á það að fá engin stig á meðan að EVI liðar náðu fullu húsi. Með sama áframhaldi munu Stefánarnir jafnvel ná toppsætinu í aumingjaskap af M&E Pálma. Admin er á hraðri niðurleið á stigatöflunni og ætti hann kannski að einbeita sér meira að því að skjóta færri skotum og lausar en hitta markið í staðin, það ku vera vænlegt til árangurs.
M.kv.
Samlokan á bekknum