Bankaboltinn á þriðjudögum

25.3.04

Undirritaður lýsir yfir óánægju sinni með admin fyrir að minnast ekki á frækilegan árangur minn, ekkert meidd og tuttugu stig í hús. Vil ég einnig vekja athygli á því að nýstofnað Fjármálasvið er að meðaltali með 77 stig á hvern starfandi knattspyrnusnilling á meðan að MAR hefur einungis halað inn að meðaltali rúmum 72 stigum á hvern tuðrusparkara í sinum röðum.

M.kv.

Samlokan á bekknum

23.3.04

rósi ruglukollur er
rétt í þessu að hugsa sér...

Ég ætla ekki að mæta í kvöld en þrátt fyrir það þá held ég að ef ég hugsa mig vel um og einbeiti mér að því, þar sem ég verð staddur í matarboði, þá takist mér með hugarorkunni að fella rósa í boltanum í kvöld með þeim afleiðingum að hann hálsbrotnar og fer skælandi heim. Þetta án þess að vera telekinetic eins og Carrie ( Stephen, nabbni minn, King).

Taktu kraga með rósi