Undirritaður átti í vök að verjast allan tímann enda með endemum óheppinn með samspilara, þurti ég m.a. að glíma við það að sitja upp með þrjá af fjórum neðstu mönnum á stigatöflunni. Það að hafa ekki tapað stærra verður því að teljast alfarið mér sjálfum að þakka þó svo að klaufaskapur admin og E. Pálma hafi einnig hjálpað til. Eddi áttaði sig greinilega á því að ef að hans lið ætti ekki að glopra þessu niður í algjörum aumingjaskap þá yrði hann að grípa til þess ráðs að gera besta mann mótherjanna (mig) óvígan. Allt leit út fyrir að þetta óþokkabragði hefði heppnast því meðan gert var að sárum mínum komust þeir í 5-0, kom undirritaður þá eins og elding inn á markaðinn þrátt fyrir að vera háls og fótbrotinn og reddaði málunum.
Mun grófur leikur Edda verða tekin fyrir hjá aganefndinni á næstunni og má reikna með að hann verði útilokaður frá keppni næstu 6 dagana.
M.kv.
Samlokan á bekknum.
Mun grófur leikur Edda verða tekin fyrir hjá aganefndinni á næstunni og má reikna með að hann verði útilokaður frá keppni næstu 6 dagana.
M.kv.
Samlokan á bekknum.