Botnbaráttan er nú hafin fyrir alvöru, ekkert verður gefið eftir á síðustu metrunum. Óli Barði er líklegur kandídat til að falla niður um deild þar sem að hann heldur bæði með Val og Leeds. Húsvörðurinn í Versló var í óvenju góðu skapi þar sem að hann sá að Rúnar var ekki mættur í tímann til að misþyrma veggjunum fyrir aftan markið með hnitmiðuðum þrumuskotum framhjá. Undirritaður átti fantagóðan leik þar til að hann var sparkaður gróflega niður í dauðafæri. Eftir tímann var svo samdóma álit annara spilara að veita mér verðlaun fyrir prúðmannlega spilamennsku svona í sárabætur fyrir þetta grófa brot, og sérstök fegurðarverðlaun fyrir frábærlega vel útfærða rennitæklingu. EPSON var kosinn vinsælasta stúlkan og ljósmyndafyrirsæta kvöldsins þrátt fyrir að geta ekki neitt. Þeir sem ekki hafa lesið örsmá letrið undir smáa letrinu í keppnisreglunum skulum síðan gera sér grein fyrir því að í lok móts er Bjórskuldin dregin frá heildarstigum til að fá út rétta röð á spilurum. Atli er því einnig í botnbaráttunni með 119 - 78 = 41 stig og er því líklegastur til að falla niður um deild með ÓBK.
Með kveðju,
Samlokan á bekknum
Með kveðju,
Samlokan á bekknum